Hugleiðsla og endurnæring
Námskeiðið miðar að því að finna öryggi mitt í breytingum. Að styrkja hæfileikann til að standast álag og finna leiðir til að tengja við uppsprettuna.
Tímarnir fara fram á netinu. Miðvikudaga kl 18.50. Við hittumst vikulega og sækjum okkur næringu innra með okkur, hver heima hjá sér en samt saman sem hópur.
Tilvalið fyrir þá sem búa úti á landi og þá sem vilja geta notið þess að iðka heima.
Áhersla verður lögð á hugleiðslu og endurnærandi öndun. Við kynnumst mismunandi formum af hugleiðslu og möntrum. Eitt form af hugleiðslu er að fara í “Skógarbað”, hugleiðslu í náttúrunni, í garðinum heima hjá okkur eða með pottaplöntu ef við komumst ekki út. Við kynnumst aðferð sem heitir Focusing sem styður okkur í að hlusta á okkur sjálf. Og við gerum orkugefandi öndunaræfingar, léttar jógaæfingar og teygjur til að hreyfa orkuflæðið í byrjun hvers tíma.
Endurnæring í gegnum jóga, öndun og hugleiðslu getur gert ótrúlega mikið fyrir okkur til að hlaða batteríin, gefið okkur rými til að finna aftur staðinn í okkur sjálfum þar sem við erum heil og sátt. Þar sem erfiðleikar og streita eiga ekki eins greiðan aðgang að okkur. Við fáum aðeins fjarlægð á vandamálin og það sem virtist yfirþyrmandi áður getur umbreyst í áskorun sem við erum tilbúin að takast á við. Þá verður líka auðveldara að velja lífsmynstur sem nærir okkur og gefur okkur meiri lífsorku.
Lífið er alltaf að breytast. Við verðum foreldrar, börnin okkar fara að heiman, við missum okkar nánustu, við missum vinnuna og þurfum að lifa í óvissu um óákveðinn tíma, við eldumst og þurfum að læra að hlusta á það. Í okkar menningu er ekki mikil áhersla á að kenna okkur að takast á við og heiðra breytingar. Það er mjög verðugt verkefni að þjálfa þennan vöðva og geta tekist á við álag og breytingar af æðruleysi.
Hugleiðsla er leið til að hreinsa undirvitundina, styrkja hlutlausa hugann og finna jafnvægi í daglegu lífi.
Bæði fyrir vana og óvana hugleiðendur. Gott tækifæri til að koma sér upp aðstöðu heima til að eiga nærandi stund og styrkja sambandið við innra sjálfið. Þátttakendur fá stuðning við að koma sér upp reglulegri hugleiðsluiðkun heima.
Fyrir flesta getur verið erfitt að setjast niður og kyrra hugann. Hugleiðsla í kundalini jóga er mjög aðgengileg, bæði fyrir vana og óvana og hefur djúp áhrif á iðkandann.
Verð: 15.000
Skráning: Skráningarskjal
Umsagnir af fyrri námskeiðum:
Ég mæli með hugleiðslunámskeiðinu hjá henni Guðrúnu í Andartaki fyrir alla sem vilja kynna sér hugleiðslu eða fá innblástur til að halda áfram. Það er alls ekki einfalt mál fyrir alla að setjast niður, slaka á byrja að hugleiða, jafnvel þó maður lesi um allskonar ávinning af því. Á námskeiðinu eru kynntar til sögunnar margskonar hugleiðslur. Við lærum öndunaraðferðir, hlustum / kyrjum möntrur, gerum ýmsar æfingar og Guðrún miðlar þekkingu sinni á einstakan hátt. Það hefur ekki breytt miklu að við höfum fært okkur yfir í zoomheima. Það er einmitt áskorun að útbúa hugleiðsluhorn heima hjá sér, fá svo leiðsögn og samveru. Halda áfram að hugleiða t.d. á hverjum degi í 40 daga og finna breytinguna sem verður. Elín G. Helgadóttir
Ég hef tekið tvö hugleiðslunámskeið hjá Andartaki frá því í janúar og get ekki hugsað mér annað en að halda áfram. Að læra og átta sig á hvað ôndun spilar stóran sess í almennri vellíðan og til að halda jafnvægi í daglegu amstri skiptir mig miklu máli eins og ég hef lært það á þessum námskeiðum. Það er dýrmætt að læra og reyna að temja sér hvernig öndun og hugleiðsla tengist inní líffæri okkar og þessi æfing að geta slökkt á þeytivindu hugans eitt augnablik og bara verið núna. Allt verður einhvernvegin einfaldara. Það er mitt markmið í framtíðinni því ég trúi að þetta fleyti manni langt. Elma Bjarney Guðmundsdóttir, klæðskeri
“Fólk lítur yfirleitt á það sem kraftaverk að ganga á vatni eða í loftinu. Ég held að mesta kraftaverkið sé hvorki að ganga á vatni né í loftinu heldur það að ganga á jörðinni. Á hverjum degi erum við þátttakendur í kraftaverki sem við erum ekki einu sinni meðvituð um, blár himinn, hvít ský, græn lauf, svört, forvitin barnsaugu eða þín eigin augu. Allt er kraftaverk.” Thich Nhat Hanh
“Ef einhver kemur og skýtur ör í hjarta þitt, þá gerir það lítið gagn að standa og öskra á þann sem skaut. Það er mun betra að beina athyglinni að þeirri staðreynd að það er ör í hjarta þínu…” Pema Chödrön