Löng gongslökun

_DSF9008 copyOpinn tími. Miðvikudaginn 12. júní kl 19.00

Gong slökun er tónheilun sem endurnærir taugakerfið og orkuflæði líkama og hugar. Það hjálpar okkur að hreinsa undirvitundina og losa um stíflur innra með okkur og opna fyrir innri kyrrð.

Gong slökun gefur þér samband við nýja vídd innra með þér, burt frá streitu hversdagsins og inn í rými þar sem þú hvílir í kyrrð. Hljóðbylgjur gongsins hafa heilandi áhrif og hljómurinn ómar í hverri frumu og losar um staðnaða orku.

Það er oft talað um að hljómur gongsins líkist fyrsta hljóðinu sem skapaði alheiminn.

“Gong er fyrsta og síðasta hljóðfærið fyrir mannshugann. Hljómur gongsins getur hafið sig yfir og kyrrað hugann. Fyrir hugann er hljómur gongsins eins og móðir og faðir sem gáfu honum líf. Hugurinn getur ekki staðist hljóm gongsins.” Yogi Bhajan, meistari í kundalini jóga

Hljómar gongsins eru margslungnir og hafa umbreytingarmátt. Tíðnin sem Gongið framleiðir skolast yfir þig í bylgjum eins og orkunudd sem skolar burtu spennu. Kyrrðin og þögnin sem fylgir á eftir hefur mjög heilandi áhrif. Í kyrrðinni á eftir heldurðu áfram að heyra gongið óma innra með þér í huga og líkama.

Gong slökun hjálpar huga og líkama að vinna úr streitu og erfiðri reynslu.

Við erum í kjallara Bústaðakirkju.
Tíminn er kl 19-20. Miðvikudaginn 12. júní.
Allir velkomnir.
Verð: 2500
Skráning: hér