Hugleiðsla friðsælt hjarta

Augun / fókus: Sittu með krosslagða fætur og hálsloku á – þeas hökuna að bringu án þess að horfa niður. Lokaðu augunum eða horfðu beint fram með augun 1/10 opin.

Mudra (handastaða): Settu vinstri höndina á hjartað, lófann flatan upp við brjóstið og fingurna lárétt við gólf – í átt til hægri. Hægri hendin er í Gyan mudra (fingurgómar vísifingurs og þumalfingurs snertast og hinir vísa beint upp). Lyftu hægri hönd upp til hægri við þig eins og þú værir að sverja eið. Lófinn snýr fram. Olnboginn slakur við síðuna.

Öndun: Einbeittu þér að önduninni. Andaðu meðvitað alla leið inn og alla leið út. Andaðu hægt og djúpt inn um nefið, lyftu brjóstinu og haltu loftinu inni eins lengi og þú getur. Andaðu þá frá, mjúkt, hægt og alveg út. Þegar þú hefur andað alveg frá, haltu þá loftinu úti eins lengi og þú getur.

Tími og lok hugleiðslu: Haltu þessari löngu djúpu öndun áfram í 3-31 mínútu. Ljúktu hugleiðslunni með því að anda djúpt og kröftugt inn 3svar sinnum. Slakaðu á.

Umsögn: Hið rétta heimili fíngerðu orkunnar, prönunnar er í lungum og hjarta. Vinstri lófinn er staðsettur við eðlislægt heimili prönunnar, og tekur þátt í að skapa djúpa kyrrð þar. Hægri höndin sem fær þig til að gera hluti og til að skilgreina, er í móttækilegri, afslappaðri múdru eða handastöðu og í stöðu sem stendur fyrir frið. Öll líkamsstaðan kallar fram friðartilfinningu. Tæknilega skapar hún kyrrstöðupunkt fyrir prönuna við hjartastöðina.

Tilfinningalega skapar þessi hugleiðsla skýra sýn á samskipti og samband þitt við sjálfa-n þig og aðra. Ef þú ert í uppnámi í vinnunni eða í samskiptum við þína nánustu, þá skaltu sitja í þessari hugleiðslu í 2-15 mínútur áður en þú ákveður hvernig þú ætlar að bregðast við. Gerðu svo það sem hjartað býður.

Líkamlega styrkir þessi hugleiðsla lungu og hjarta.

Þessi hugleiðsla er fullkomin fyrir byrjendur. Hún opnar fyrir meðvitund gagnvart önduninni og hún styrkir og nærir lungun. Þegar þú heldur andanum eins lengi og þú getur inni eða úti er ekki átt við að gera það svo duglega að þú sért alveg að kafna eða í spennu á nokkurn hátt þegar þú andar aftur. Þú getur reynt að gera hana einu sinni í 3 mínútur. Eða 3svar sinnum í 3 mínútur og tekið 1 mínútu hvíld á milli í samtals 11 mínútur á meðan þú ert að byggja upp þol og venjast því að hugleiða. Fyrir lengra komna og þá sem vilja þjálfa einbeitingu og fylla sig af nýrri orku og æskukrafti er hægt að byggja tímann upp í 31 mínútu.