Hugleiðsla í dagsins önn

Hugleiðsla er tími með okkur sjálfum, til að endurnærast, finna kyrrðina hið innra og hlusta á sálina. Tími til að vera. Finna aftur taktinn innra með okkur og gefa heiminum fyrir utan frí á meðan. Hugleiðsla kennir okkur að styrkja hlutlausa hugann svo við getum betur valið viðbrögð okkar og haldið í æðruleysið þegar á móti blæs. Hugleiðsla er eins og að fara í bað. Hún hreinsar undirvitundina, beinir athygli okkar inn á við, inn í andartakið og færir okkur frið.

Það er ágæt leið til að koma daglegri hugleiðslu inn í rútínuna að setja sér það markmið að hugleiða daglega 40 daga. Þannig sköpum við nýjan vana. Fyrst mótum við vanann og svo mótar vaninn okkur.

ÞAÐ TEKUR 40 DAGA AÐ BRJÓTA UPP VENJUR OKKAR
ÞAÐ TEKUR 90 DAGA AÐ BÚA TIL NÝJAR VENJUR
ÞAÐ TEKUR 120 DAGA AÐ FESTA NÝJA VANANN Í SESSI
ÞAÐ TEKUR 1000 DAGA AÐ VERÐA MEISTARI Í NÝJA
VANANUM.

Hér eru nokkur atriði sem gætu gagnast þeim sem vilja koma sér upp þeirri venju að hugleiða daglega:

1. Veldu tíma sem hentar þér til að hugleiða. Það er ágætt að hugleiða alltaf á sama tíma. Besti tíminn til að hugleiða er við sólarupprás og sólsetur. Ef sá tími hentar þér ekki þá er bara um að gera að velja tíma sem hentar.

2. Það er líka gott að velja alltaf sama staðinn. Veldu þér rólegan stað þar sem þú getur verið í næði.

3. Vertu í þægilegum fötum. Jógar klæðast oft hvítu eða ljósu. Hvítt stækkar áruna og varpar frá okkur neikvæðni.

4. Það er auðveldara að hugleiða með tóman eða léttan maga. Annars fer öll orkan í meltinguna. Hugurinn verður tærari þegar við erum ekki nýbúin að borða.

5. Það hjálpar að skapa notalega stemmningu. Þú getur til dæmis byrjað á að kveikja á kerti og jafnvel sett ljúfa jógatónlist á áður en þú byrjar. Það undirbýr hugann og fær okkur oft frekar til að langa til að eiga kyrrðarstund.

6. Mikilvægt er að sitja með bakið beint. Það er gott að sitja með krosslagðar fætur – þá er auðveldara að hafa bakið beint og ekkert sem liggur upp að bakinu. Svo er líka hægt að sitja á stól.  Ef þú velur fyrri kostinn getur hjálpað að setja púða undir rassinn til að hækka mjaðmirnar – það gerir það auðveldara að sitja beinn. Ef hnén eru í lausu lofti er erfiðara að halda stöðunni – settu eitthvað undir hnén ef þarf.

7. Það er gott að ramma hugleiðslustundina inn og hækka tíðnina með því að byrja á að syngja möntru. Mantra hjálpar okkur að beina huganum og lyfta honum upp á hærri tíðni. Dálítið eins og við værum að teikna hring í kringum okkur og setjast inn í hann – og segja um leið við hugann; “Hér ætla ég að sitja og ekki láta neitt trufla mig á meðan”. Í tímunum okkar tengjum við inn með því að syngja möntruna ONG NAMO GURUDEV NAMO. Það merkir: Ég lýt óendanleikanum innra með mér. Ég lýt æðri leiðsögn.

8. Ef þú hefur tíma getur verið gott að byrja á nokkrum upphitunaræfingum. Það kemur blóðrásinni í gang, hressir okkur við, tekur burtu eirðarleysi og gefur þér tilfinningu fyrir léttleika í líkamanum. Það verður auðveldara á eftir að sitja kyrr í lengri tíma.  Öndunaræfingar eru líka góðar að gera á undan hugleiðslu. Þær gefa okkur taktfasta öndun og hægja á huganum  svo hann verður stöðugri. Ef tíminn er naumur er til dæmis hægt að velja annað hvort eða fara beint í hugleiðsluna.

9. Ljúft bros á meðan þú hugleiðir er mjög notalegt og gefur huganum skilaboð um að þér líði vel.

10. Sittu í kyrrð eftir að hugleiðslunni lýkur. Og hlustaðu á þögnina.

11. Þú gætir lokið hugleiðslustundinni með því að fara með möntru. Í tímunum okkar endum við með því að syngja möntruna SAT NAAM. Langt Sat og stutt Naam. Sem mætti þýða svona: “Minn innsti kjarni er ljós sannleikans” eða “ég tilheyri óendanleikanum”. Þannig opnum við hringinn aftur og stígum út í daginn.

Finndu fyrir fljóti stjarnanna innra með þér og þér sem lifir í fljóti stjarnanna. Hvernig tengir þú við einingu?  Tanaaz Chubb

Til eru margs konar form af hugleiðslu. Auk þess að hafa þessi almennu áhrif sem hugleiðsla hefur, eins og nefnt er hér að ofan, þá hafa mismunandi form af hugleiðslu hver sinn fókus eða tilgang.

Við erum öll misvel upplögð frá degi til dags. Suma daga er meira álag en aðra. Suma daga erum við sátt við lífið og aðra ekki. Ef við höldum áfram í gegnum allar þessar innri og ytri sveiflur að setjast niður, kyrra hugann og eiga samtal við sálina, þá sköpum við smám saman nýjan vana sem þjónar okkur þegar á reynir. Þannig kennum við huganum að þjóna okkur í stað þess að vera þrælar hans.

“Sá sem sigrar hugann, sigrar heiminn.” Guru Nanak