Kanntu listina að slaka á?

tree-of-life72Það að kunna að slaka á er ekki sjálfgefið – að minnsta kosti ekki fyrir okkur sem lifum við álag og áreiti nútímalífs. Við erum misviðkvæm fyrir streitu og áreiti en flest eigum við það sameiginlegt að geyma streitu í líkamanum – líka þegar dagurinn er að kvöldi kominn og við gefum sjálfum okkur leyfi til að taka lífinu með ró. Þetta er oft djúpt liggjandi spenna í taugakerfinu sem erfitt getur verið að ná í og fá líkamann til að slaka á.

Í flestum tilfellum erum við ekki meðvituð um nema hluta af þeirri spennu sem við geymum i líkamanum. En eins og með allt annað getum við endurheimt hæfileikann til að slaka á – eins og við getum þjálfað aftur upp vöðva.

Heilabylgjur og slökun


Taugafrumur í heilanum senda frá sér bylgjur á mismunandi tíðni – og þannig er hægt að mæla stig slökunar.
 Þegar við erum vakandi sendir heilinn frá sér Beta-bylgjur. Flest okkar erum í beta ástandi þegar við erum að hugsa. Alfa bylgjur koma þegar við erum slök. Þær eru taldar hjálpa okkur að græða líkama og huga. Ef við slökum aldrei á, þá eru streituhormón í stöðugri virkni og hæfileiki okkar til að læra og vera skapandi minnkar.

Lesa meira hér: Kanntu listina að slaka á?

Námskeiðið Djúpslökun, heilun og hugleiðsla

hefst mánudaginn 7. nóvember. Nánar um námskeiðið hér: Djúpslökun, heilun og hugleiðsla.

Comments are closed.