Friðsæll hugur á tímum breytinga

Hugleiðsla og endurnæring fyrir óvissutíma

Tímarnir fara fram á netinu. Miðvikudaga kl 18.50.

Við lifum á óvenjulegum tímum og í breyttum heimi sem skapar óöryggi. Hugleiðslunámskeiðið miðar að því að finna öryggi mitt í öllu umrótinu. Að lifa með öllum þessum breytingum sem við stöndum frammi fyrir. Að styrkja hæfileikann til að standast álagið og finna leiðir til að tengja við uppsprettuna í  friðsældinni sem er þarna innra með okkur þrátt fyrir allt. 

Áhersla verður lögð á hugleiðslu og endurnærandi öndun. Við gerum orkugefandi öndunaræfingar, léttar jógaæfingar og teygjur til að hreyfa orkuflæðið, förum í djúpa slökun og hugleiðslu.

Við hittumst á netinu vikulega og sækjum okkur næringu innra með okkur, hver heima hjá sér en samt saman sem hópur.

Bæði fyrir vana og óvana hugleiðendur.
Gott tækifæri til að koma sér upp aðstöðu heima til að eiga nærandi stund og styrkja sambandið við innra sjálfið.

Endurnæring í gegnum jóga, öndun og hugleiðslu
 getur gert ótrúlega mikið fyrir okkur til að hlaða batteríin, gefið okkur rými til að finna aftur staðinn í okkur sjálfum þar sem við erum heil og sátt. Þar sem erfiðleikar og streita eiga ekki eins greiðan aðgang að okkur. Við fáum aðeins fjarlægð á vandamálin og það sem virtist yfirþyrmandi áður getur umbreyst í áskorun sem við erum tilbúin að takast á við. Þá verður líka auðveldara að velja lífsmynstur sem nærir okkur og gefur okkur meiri lífsorku.

Við kynnum okkur hin fjölbreytilegustu form af hugleiðslu; hugleiðslu sem byggir á öndun og eða möntru, hugleiðslu með hreyfingu, hugleiðslu sem heilun og sem meðal við ýmsum vandamálum sem manneskjan glímir við. Við förum í “Skógarbað”, hugleiðslu í náttúrunni, í garðinum heima hjá okkur eða með pottaplöntu ef við komumst ekki út.

Hugleiðsla er leið til að hreinsa undirvitundina, styrkja hlutlausa hugann og finna jafnvægi í daglegu lífi.

Fyrir flesta getur verið erfitt að setjast niður og kyrra hugann. Huganum er stundum líkt við apa sem er aldrei kyrr. Hugleiðsla í kundalini jóga er mjög aðgengileg, bæði fyrir vana og óvana og hefur djúp áhrif á iðkandann.

Verð: 18.000

Skráning: Skráningarskjal

Umsagnir af fyrri námskeiðum: 

Ég mæli með hugleiðslunámskeiðinu hjá henni Guðrúnu í Andartaki fyrir alla sem vilja kynna sér hugleiðslu eða fá innblástur til að halda áfram.
Það er alls ekki einfalt mál fyrir alla að setjast niður, slaka á byrja að hugleiða, jafnvel þó maður lesi um allskonar ávinning af því.
Á námskeiðinu eru kynntar til sögunnar margskonar hugleiðslur. Við lærum öndunaraðferðir, hlustum / kyrjum möntrur, gerum ýmsar æfingar og Guðrún miðlar þekkingu sinni á einstakan hátt.
Það hefur ekki breytt miklu að við höfum fært okkur yfir í zoomheima. Það er einmitt áskorun að útbúa hugleiðsluhorn heima hjá sér, fá svo leiðsögn og samveru. Halda áfram að hugleiða t.d. á hverjum degi í 40 daga og finna breytinguna sem verður.
Elín G. Helgadóttir

Ég hef tekið tvö hugleiðslunámskeið hjá Andartaki frá því í janúar og get ekki hugsað mér annað en að halda áfram. Að læra og átta sig á hvað ôndun spilar stóran sess í almennri vellíðan og til að halda jafnvægi í daglegu amstri skiptir mig miklu máli eins og ég hef lært það á þessum námskeiðum. Það er dýrmætt að læra og reyna að temja sér hvernig öndun og hugleiðsla tengist inní líffæri okkar og þessi æfing að geta slökkt á þeytivindu hugans eitt augnablik og bara verið núna. Allt verður einhvernvegin einfaldara. Það er mitt markmið í framtíðinni því ég trúi að þetta fleyti manni langt.
Elma Bjarney Guðmundsdóttir, klæðskeri 

“Fólk lítur yfirleitt á það sem kraftaverk að ganga á vatni eða í loftinu. Ég held að mesta kraftaverkið sé hvorki að ganga á vatni né í loftinu heldur það að ganga á jörðinni. Á hverjum degi erum við þátttakendur í kraftaverki sem við erum ekki einu sinni meðvituð um, blár himinn, hvít ský, græn lauf, svört, forvitin barnsaugu eða þín eigin augu. Allt er kraftaverk.” Thich Nhat Hanh

“Ef einhver kemur og skýtur ör í hjarta þitt, þá gerir það lítið gagn að standa og öskra á þann sem skaut. Það er mun betra að beina athyglinni að þeirri staðreynd að það er ör í hjarta þínu…”  Pema Chödrön