Hugleiðsla og núvitund fyrir gleði í daglegu lífi

_DSF8678 copyNýtt námskeið. Kennari er Guðrún Darshan

Nánar auglýst síðar

Við ætlum að skoða hvernig við getum nært gleði og sátt í daglegu lífi í gegnum hugleiðslu, núvitund og jóga. Tímarnir verða í bland spjall, hugleiðsla, núvitundaræfingar, léttar jógaæfingar og slökun. Við tökum okkur stund til að skoða hvað er að hindra okkur í lífinu og hvernig við getum fundið gleði og sátt. Áhersla verður lögð á að styðja þátttakendur í að koma sér upp reglulegri iðkun hugleiðslu og að skapa rými fyrir sjálfsumhyggju.

Hugleiðsla er tími með okkur sjálfum, til að endurnærast, finna kyrrðina hið innra og hlusta á sálina. Tími til að hlusta, finna aftur taktinn innra með okkur og gefa heiminum fyrir utan frí á meðan. Hún kennir okkur að styrkja hlutlausa hugann svo við getum betur valið viðbrögð okkar og haldið í æðruleysið þegar á móti blæs. Hugleiðsla er eins og að fara í bað, hún hreinsar undirvitundina, beinir athygli okkar inn á við, inn í andartakið og færir okkur frið.

“Fólk lítur yfirleitt á það sem kraftaverk að ganga á vatni eða í loftinu. Ég held að mesta kraftaverkið sé hvorki að ganga á vatni né í loftinu heldur það að ganga á jörðinni. Á hverjum degi erum við þátttakendur í kraftaverki sem við erum ekki einu sinni meðvituð um, blár himinn, hvít ský, græn lauf, svört, forvitin barnsaugu eða þín eigin augu. Allt er kraftaverk.” Thich Nhat Hanh

“Ef einhver kemur og skýtur ör í hjarta þitt, þá gerir það lítið gagn að standa og öskra á þann sem skaut. Það er mun betra að beina athyglinni að þeirri staðreynd að það er ör í hjarta þínu…”  Pema Chödrön

Nánari upplýsingar: andartak@wp.andartak.is

Verð: 18.500

Skráning: Skráningarskjal