Fjörutíu daga hugleiðsla í Andartaki

?????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????????Við í Andartaki bjóðum öllum sem vilja taka þátt að vera með í hugleiðsluáskorun næstu 40 dagana.

Við hefjum hugleiðsluna saman mánudaginn 5. mars 2018. Tíminn hefst kl 17.15. Jóga, hugleiðsla og slökun á eftir.

Eftir það hugleiðum við hver heima hjá sér og í tímum Andartaks þegar þið komist í tíma. Ekki er nauðsynlegt að koma í tíma til að taka þátt en við mælum með því að koma í tíma amk inn á milli til að fá enn meira út úr hugleiðslunni.
Hægt er að skrá sig til þátttöku hér

Við verðum líka með stuðningshóp fyrir þátttakendur í hugleiðslunni á facebook – hægt er að senda okkur póst og biðja um aðgang í hópinn. Allir velkomnir að vera með, hvort sem þeir eru með reynslu af hugleiðslu eða ekki.

Hugleiðslan okkar heitir Bhakti mantra kriya

Dagleg hugleiðsla gefur okkur aukna einbeitingu, dregur úr streitu og kvíða, bætir ónæmiskerfið og eykur sjálfstraustið. Við förum að sjá betur hvert við stefnum og hvað við viljum í lífinu og öðlumst aukið þol fyrir breytingum og erfiðleikum.

Ef þið komist ekki á mánudaginn þá er um að gera að hafa samband (andartak@wp.andartak.is) og eða koma á næstu dögum i opninn tíma.

Lífsorka, hamingja og hugleiðsla: Mán og fim kl 17.15. Tímarnir eru bæði fyrir vana og óvana iðkendur. Nánar um tímana hér