Við í Andartaki bjóðum öllum sem vilja taka þátt að vera með í hugleiðsluáskorun næstu 40 dagana.
Við hefjum hugleiðsluna saman mánudaginn 9. nóvember kl 19.40. Allir velkomnir að koma líka í tímann á undan. Hann hefst kl 17.15. Kraftmikið jóga og gong slökun á eftir.
Eftir það hugleiðum við hver heima hjá sér og í opnum tímum Andartaks þegar þið komist í tíma. Ekki er nauðsynlegt að koma í tíma til að taka þátt en við mælum með því að koma í tíma amk inn á milli til að fá enn meira út úr hugleiðslunni.
Skráning: Til að skrá sig er hægt að senda póst á andartak@wp.andartak.is
Við verðum líka með stuðningshóp fyrir þátttakendur í hugleiðslunni á facebook – hægt er að senda okkur póst og biðja um aðgang í hópinn. Allir velkomnir að vera með, hvort sem þeir eru með reynslu af hugleiðslu eða ekki.
Dagleg hugleiðsla gefur okkur aukna einbeitingu, dregur úr streitu og kvíða, bætir ónæmiskerfið og eykur sjálfstraustið. Við förum að sjá betur hvert við stefnum og hvað við viljum í lífinu og öðlumst aukið þol fyrir breytingum og erfiðleikum.
Hugleiðslan sem við ætlum að gera heitir Kirtan kriya. Sjá leiðbeiningar hér: Kirtan kriya.