Talnaspeki með Dharma Kaur

DKK smallFyrirlestur miðv. 20. maí kl 18.45

Einkatímar 18.-24. maí.

Jógísk talnaspeki er þekkingarkerfi sem ýtir undir persónulegan þroska, leiðbeinir og heilar okkur. Það byggir á fornu indversku kerfi, Akar Jantri og var kennt af Yogi Bhajan. Tæknin innifelur líka eiginleika úr klassísku jóga og tæknilegri nálgun vestrænnar hugsunar.

Þessa tækni er hægt að nota fyrir fólk, pör, fjölskyldur, fyrirtæki, lönd, dýr og aðrar lifandi verur.Fæðingardagurinn (sköpun, byrjun) er upphafspunktur okkar. Jógísk talnaspeki gefur okkur innsýn inn í lífskortið okkar, hjálpar okkur að átta okkur, öðlast heilun og umbreytingu.

Fyrirlesturinn:

Í dag miðvikudaginn 20. maí kl 18.45-20.15Verð: 2500 og 2000 kr fyrir iðkendur í Andartaki.Á fyrirlestrinum ætlum við að fræðast um tilgang jógískrar talnaspeki og leika okkur aðeins með tölur.Við fáum að skyggnast inn í heim praktískrar talnaspeki  og taka heim með okkur nokkur tæki til að leika okkur með áfram. Einnig gæti verið áhugavert fyrir þá sem geta hugsað sér að læra jógíska talnaspeki af Dharma Kaur í framtíðinni. Og er hugsanlegt að hún heiðri okkur með annarri heimsókn að ári og bjóði þá upp á nám í talnaspeki.

Einkatímar:

Hver tími tekur klukkutíma og kostar 14.500.
Tímanum er ætlað að hjálpa einstaklingnum að svara þessum spurningum:Hver er ég?
Hvers vegna er ég hér?
Hvernig get ég breytt / haft áhrif á líf mitt?
Hvað er ég komin-n til þess að gera í þessu lífi?
Hvað þarf ég að læra?
Er þetta rétti tíminn til að gera einhvern ákveðinn hlut?
Og fleira.
Þessi tækni hjálpar þér að skilja og greina lífskortið þitt.Umsögn:

“Þessi tími fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég mæli mjög með því að fara til hennar. Hún skýrði svo margt sem mig langaði til að vita. Dharma er kona til fyrirmyndar og hefur af miklu að miðla.”
Guðbjörg Jónsdóttir

Hægt er að panta tíma með því að hafa samband við: andartak@wp.andartak.is. Guðrún Darshan s: 8962396

Dharma Kaur Khalsa

Er búsett í Equador, og fædd og uppalin í Chile. Hún hefur kennt kundalini jóga síðan ´97 og lærði og starfaði fyrir Yogi Bhajan, meistara í Kundalini jóga í mörg ár. Hún starfaði einnig í þrjú ár sem aðstoðarmanneskja Bibi Amerjit Kaur – eiginkonu Yogi Bhajan. Dharma kennir einnig Sat nam rasayan auk þess að halda námskeið víða um heim í jógískri talnaspeki. Hún á eina dóttur og býr í hátt uppi í fjöllum Equador í bænum Quito.